Sveinn Birkir – Gamalt efni

afrit af gamla kaninka.net/birkir blogginu…

Lundur

with 2 comments

Ég hef verið búsettur í Íslendinganýlendunni Lundi í rúma viku. Mikið af tíma mínum hefur farið í að leita uppi ódýr húsgögn þar sem við seldum mest af okkar húsgögnum áður en við yfirgáfum landið. Við eigum nú þrjá eldhússtóla, tvö rúm, einn sófa og bæði eldhús- og sófaborð (reyndar erum við með eldhússtólana í láni).

Ekki slæmt fyrir fimm manna fjölskyldu.

Það eina sem ég sakna er hnífapör. Það er ótrúlega leiðinlegt að borða með plasthnífapörum til lengdar. Og fleiri potta. Það er heftandi fyrir listamenn eins og mig að elda bara úr einum potti.

Úr þessu rætist þó fljótlega því ég á von á nokkrum kössum með dóti úr mínu fyrra heimili fljótlega, eða svo fljótt sem Samskip lætur verða að því að tollafgreiða þessi tvö bretti.

Í dag stofnaði ég bankareikning.

Fyrirfram hefði maður haldið að það væri einfalt mál, en svo er ekki.

Written by sveinnbirkir

February 10, 2009 at 23:25

Posted in Almennt

Upprisan / brottförin

with 5 comments

(Þrátt fyrir titilinn, þá fjallar þetta blogg ekki um íslensk stjórnmál – höf.)

Ég er fluttur úr landi.

Þess vegna hef ég ákveðið að virkja þetta vefsvæði aftur. Undanfarið hefur þessi slóð vísað á tumblr.com bloggið sem ég hef verið að nota, en eftirleiðis mun ég eingöngu nota það til að halda utan um, og vísa á, allt það skemmtilega sem ég finn á internetinu, en nota þessa slóð til þess að færa ættingjum og vinum fréttir af högum mínum á erlendri grundu og tjá mig um menn og málefni. Ég hef margt gott um Tumblr bloggkerfið að segja, en ég held að það henti mínum þörfum betur að greina á milli með þessum hætti. Þið getið alltaf séð hvað ber þar hæst á baugi í valmyndinni hérna hægra megin.

Ég er fluttur til Svíþjóðar. Langtímamarkmiðið er að setjast að í Lund, en sem stendur bý ég í Staffanstorp, litlum svefnbæ sem liggur miðja vegu milli Malmö og Lund. Það mun þó væntanlega rætast úr þessu þann 1. febrúar, þegar mér hefur verið lofað íbúð á stúdentagörðum háskólans.

Vanda verður hér í námi. Ég veit ekki enn hvað ég verð að gera.

Ég lofa ykkur óreglulegum og óáhugaverðum uppfærslum, svo endilega munið eftir að bæta þessu við rss-ið hjá ykkur.

Written by sveinnbirkir

January 21, 2009 at 23:40

Posted in Almennt

Óskar er ógeðslega fúll út í mig

with 3 comments

Það er sniðugt hvernig þær flokksystur Marsibil Sæmundsdóttir og Dagný Jónsdóttir forgangsraða ´líkt í pólitík. „Þetta er ekki auðveld ákvörðun en ég verð að fylgja minni sannfæringu. Óskar er ógeðslega fúll út í mig og hann skilur ekki mína afstöðu. Það er hins vegar fullt af fólki sem styður mig. Auðvitað eru margir í Framsóknarflokknum óánægðir með mig en en ég get ekki tekið ákvarðanir gegn minni sannfæringu út frá því,” segir Marsibil.

Dagný fannst samt skipta meira máli að spila með ‘liðinu’ en að fylgja sinni sannfæringu.

Written by sveinnbirkir

August 15, 2008 at 11:43

Posted in Almennt

Meira gott sjónvarp

with 3 comments

Ég vil benda á að hægt er að horfa á hina frábæru þætti Mad Men beint af vef sjónvarpsstöðvarinnar AMC

Written by sveinnbirkir

August 4, 2008 at 16:05

Posted in Almennt

Frábærir sjónvarpsþættir frá Ástralíu

with one comment

Ástrálska ríkissjónvarpið sýnir nú nýja þáttaseríu sem nefnst The Hollowmen. Þættirnir gerast í innsta koppi ástralska forsætisráðherrans, þar sem starfsmenn Central Policy Unit reyna að finna tryggja vinsældir ráðherrans með því að leiða flókin pólitísk úrlausnarefni til farsælla lykta í fjölmiðlum án þess að vinsældir ráðherrans hljóti hnekki af.

Augljóslega gengur það upp og niður og aldrei án hnökra.

Fjórir þættir hafa þegar verið sýndir. Þeir eru fáanlegir á netinu fyrir þá sem eru tilbúinir að leita, en einnig er hægt að horfa á nýjasta þáttinn hverju sinni beint af vef ástralska ríkissjónvarpsins.

Ég mæli sterklega með að þið kynnið ykkur þessa þætti. Þeir eru fyndnir.

Written by sveinnbirkir

August 4, 2008 at 02:12

Posted in Almennt

Fyrir veislugesti

with one comment

snapshot-2008-08-01-00-17-23.jpgMargir virðast velkjast í vafa um hvar veislan fer fram. Hér er kort.

Written by sveinnbirkir

August 1, 2008 at 00:23

Posted in Almennt

Samkeppni hjá KR

leave a comment »

Brá mér í Frostaskjól fyrr í kvöld og fylgdist með leik KR og Fjölnis. Mér sýnist á öllu að með komu Bjarna Guðjónssonar hafi Björgólfur Takefusa fengið talsverða keppni um titilinn ‘þéttasti’ leikmaðurinn.

Written by sveinnbirkir

July 30, 2008 at 02:21

Posted in Almennt

Guided by Voices

with 3 comments

Robert PollardEkki alls fyrir löngu komst ég í kynni við hljómsveitina Guided by Voices. Áhugi minn kviknaði við lestur á bókinni Perfect From Now On: How Indie Rock Saved My Life eftir poppskríbentinn John Sellers. Bókin er reyndar ekkert sérstök, en aðdáun Sellers á GBV varð til þess að ég ákvað að kynna mér þessa hljómsveit aðeins nánar, sem ég hafði aldrei gert áður.

Þetta var ein skemmtilegasta uppgvötun sem ég hef gert ótrúlega lengi. Nú er svo komið að ég hef náð að safna að mér 824 lögum með hljómsveitinni. Það eru samtals 1,2 sólahringur í hlustun, og 1,7 gb af harðadisknum mínum.  Ég er þó ekki búinn að eignast allt með þeim, því samkvæmt The Guided By Voices Database þá gaf hljómsveitin út alls 1.328 lög á 20 ára ferli sínum (sumt eru reyndar tökulög og tónleikaútgáfur) á 15 breiðskífum og ca. 45 EP plötum, singles, safnplötum og öðrum comp. útgáfum.

Maðurinn á bakvið hljómsveitina, eini lagahöfundurinn og upphaflegi meðlimurinn, Robert Pollard (f. 1957) lagði hljómsveitina niður árið 2004 til þess að gefa lög sín út sjálfur. Síðan þá hefur hann gefið út 14 plötur (smáskífur og breiðskífur). Alls eru sólóskífur hans orðnar 20. Þá eru ótalin rúmlega 35 hliðarverkefni sem hann hefur tekið þátt í.

Sumu fólki tekst bara að koma meiru í verk en öðrum.

Ég býð ykkur að hlusta hér  á lagið Motor Away sem er einn fjölmargra gullmola sem ég hef dottið niður á við að fara í gegnum þessi rúmlega 800 lög. Ekki að ég sé búinn að hlusta á þetta allt enn…

http://www.kaninka.net/birkir/wp-content/audio/01%20Motor%20Away%20(7_%20Version).mp3

Written by sveinnbirkir

July 21, 2008 at 23:39

Posted in Almennt

Lag dagsins

with 2 comments

Hüsker Du – Something I Learned Today.

Hüsker Du – Something I Learned Today

Fyrir þá sem vilja meðtaka nýja þekkingu.

Written by sveinnbirkir

June 26, 2008 at 02:45

Posted in Almennt

Orðaleikir

leave a comment »

Þegar mbl.is fer í orðaleiki og sniðugheit með fyrirsagnir… þá vill það klikka:

Ný rótarlén væntan.leg – mbl.is

Written by sveinnbirkir

June 24, 2008 at 12:10

Posted in Almennt

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.